UM VERKIÐ
Komnar eru í sölu nýjar íbúðir í bryggjuhverfinu í Reykjavík. Um er að ræða hagkvæmar íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur.
Á lóðinni eru fjórar byggingar með samtals 103 íbúðum og með sameiginlegum bílakjallara. Húsin ramma inn skjólgóðan garð, undir honum er bílageymsla fyrir 62 bíla en einnig eru 41 stæði ofanjarðar innan lóðar. Þannig að heildarfjöldi bílastæða innan lóðar eru 103 stæði. Einnig til viðbótar eru svo bílastæði utan lóðar í almenningsrými til notkunar fyrir hverfið sem heild og gesti.
Hús á vesturhluta lóðar er Gjúkabryggja 10-12. Það er með tveimur stigahúsum og er þriggja hæða. Það eru 9 íbúðir á hæð og als 27 íbúðir í húsinu.
Hús á suðurhluta lóðar er Buðlabryggja 25-27. Það er með tveimur stigahúsum og er þriggja hæða. Það eru als 23 íbúðir í húsinu.
Hús á norðurhluta lóðar er Endilsbryggja 24. Það er með einu stigahúsi, er fjögurra hæða og með 26 íbúðum.
Hús á austurhluta lóðar er Buðlabryggja 29-31. Það er þriggja hæða með tveimur stigahúsum og alls 27 íbúðum.
Markmið verkefnisins er að skapa nýjar og raunhæfar leiðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur til að komast inn á fasteignamarkaðinn við betri kjör.
Söluferli íbúðanna er því aðeins óhefðbundið en á tímabilinu 1.12.2025 til 28.2.2026 geta aðeins tilboðsgjafar á aldrinum 18-40 ára lagt inn kauptilboð. Frá 1.3.2026 dettur sú aldurskvöð út og allir óháð aldri geta lagt inn kauptilboð.
GOTT AÐ VITA
Íbúðirnar eru seldar undir markaðsverði fyrir tilstuðlan átaks Reykjavíkurborgar fyrir fyrstu kaupendur um hagkvæmt húsnæði en á eigninni hvíla kvaðir sem gilda líka síðar þegar kemur að endursölu íbúðarinnar. Með öðrum orðum, þegar kaupandi selur aftur, hvenær sem það verður í framtíðinni, þá á kaupandi að geta fengið markaðshækkanir út frá sínu kaupverði, en ekki sjálfstætt verðmat.
Mælt er með að fólk kynni sér kynningarefni frá Reykjavíkurborg, sjá hérna: https://reykjavik.is/husnaedi/hagkvaemt-husnaedi
Hægt er að lesa sig betur til um þær kvaðir sem gilda í lóðarleigusamning.
