Bílakjallarinn
Undir húsunum er rúmgóður bílakjallari með 62 sérmerktum stæðum. Innkeyrsla er með fjarstýrðri hurð og beint innangengt úr kjallaranum í stigahús og lyftur.
Bílakjallarinn er búinn vatnsúðakerfi, brunaviðvörunarkerfi og epoxýmáluðu gólfi. Þar er einnig vagna- og hjólageymsla, tæknirými og séreignargeymslur fyrir íbúðirnar.
Örugg og þægileg lausn sem gerir daglegt líf einfaldara — sérstaklega þegar veður er válynt.
INNGARÐURINN
Húsin ramma inn skjólgóðan og fallegan innigarð sem gefur hverfinu notalega og friðsæla heild. Garðurinn er yfir bílakjallara en í miðju hans er stórt ljósop með gróðri og gegndræpu yfirborði sem tryggir góða fráveitu og vistvæna lausn.
Jarðhæðaríbúðir fá sérafnotasvæði með timburpöllum og stéttar við aðalinnganga eru hellulagðar með hitalögnum að hluta.
Garðurinn verður án trjáa og blóma við afhendingu, þannig að nýir íbúar geta mótað hann að sínum smekk með tíma. Hér skapast sameiginlegt rými þar sem börn geta leikið sér, fullorðnir notið útiveru og nágrannatengsl dafnað.

Umhverfið
